Ársreikningur Reykjavíkurborgar lagður fram. Í tilkynningu frá borginni segir meðal annars:
–
Áframhaldandi sterk staða Reykjavíkurborgar
…rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er jákvæð um 8 milljarða króna en niðurstaðan af rekstri A-hluta var neikvæð um ríflega fimm milljarða. Helsta skýring neikvæðrar niðurstöðu af A-hluta borgarinnar er mikil hækkun lífeyrisskuldbindinga auk þess sem há verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði leiðir til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna. Rekstur málaflokka og þjónustu var í jafnvægi og í takt við áætlanir…
…laun og annar rekstrarkostnaður án lífeyrisskuldbindinga nam 189,5 milljörðum króna og hækkaði um 7% á milli ára. Launaútgjöld hækkuðu um 8,4 milljarða króna eða um 8,1% en nýir kjarasamningar hafa hér nokkur áhrif.




