Auður Jónsdóttir rithöfundur vinnur nú að ritun ævisögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrum untanríkisráðherra, borgarstjóra og formanns Samfylkingarinnar. Verkið er komið á veg en löng leið framundan.
–
Ingibjörg Sólrún er 71 árs. Varð stúdent 1974. BA-próf í sagnfræði og bókmenntum HÍ 1979. Gestanemandi við Hafnarháskóla 1979–1981. Cand. mag. nám í sagnfræði við HÍ 1981–1983. Vann ýmis almenn störf með námi 1974–1981. Starfsmaður dönsku póstþjónustunnar 1979–1981. Ritstjóri tímaritsins Veru 1988–1990. Ýmis ritstörf og blaðamennska 1990–1991. Borgarstjóri Reykjavíkur 1994–2003. Skipuð 24. maí 2007 utanríkisráðherra, lausn 1. febrúar 2009.




