Eyjólfur Kjalar Emilsson heimspekiprófesssor í Osló um margra ára skeið, nú á eftirlaunum, hefur ásamt konu sinni sett glæsilega íbúð á Nýlendugötu 6 a sölu – miðhæð og ris. Eða eins og segir í auglýsingu:
„Glæsileg, mikið endurnýjuð eign á frábærum stað á 252 fm eignarlóð við Nýlendugötu. Um er að ræða hæð og ris með sérinngangi í tvíbýli. Miklar endurbætur hafa verið unnar á eigninni bæði að innan og utan á undanförnum árum. Staðsetning eignarinnar er einstök á þessum rólega stað en þó örstutt í menningu, veitingastaði, verslun, þjónustu og höfnina. Eign með mikinn sjarma sem vert er að skoða.“ Sjá myndir hér.
Ásett verð er 92,9 milljónir. Byggt 1925, 89,7 fermetrar, fjögur herbergi, tvö svefnherbergi.



