„Ég þrái heimboð til ykkar á Hólmsheiðina vinir mínir áður en mér verður stungið þar inn. Langar að hitta endurnar lík,“ segir listakonan og forsetaframbjóðandinn Steinunn Ólína sem verið hefur mjög beitt á samfélagsmiðlum að undanförnu – en varla er fólki stungið í steininn fyrir það? Bætir svo við:
„Ég leita að svart hvít röndóttu efni sem hentar í fangabúning á mig. Strangar af KR efni kæmu til greina.“




