Eintak af bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, er á bókauppboði Foldar. Eintakið er áritað af Davíð til þáverandi forsetahjóna, Ólafs Ragnars Grímssonar og Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur.
Áritunin þykir auka verðgildi bókarinnar í ljósi sögunnar því oft og lengi elduðu þeir grátt silfur saman, Davíð og Ólafur Ragnar.
Bókin kom út hjá Vöku-Helgafelli 1997, er smásagnasafn og verðmat þessa eintaks á uppboðinu 180.000 – 200.000. Uppboðinu lýkur 14. apríl.



