
Verkið Móðir jörð eftir Ásmund Sveinsson, sem er staðsett í gamla anddyri Landspítalans í Fossvogi á annarri hæð, er illa farið. Bæði móðir og barn eru illa fótbrotin.
Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir myndlistarkona og iðnhönnuður var þarna á ferð og myndaði illa farna styttuna:
„Þegar ég var þarna í morgun var ég hissa og sorgmædd að ekki sé gert við verkið.“


