Vasaþjófar herja á erlenda ferðamenn hér á landi og eru til vandræða. Friðrik Brekkan, þrautreyndur leiðsögumaður, er með lausn:
„Þessar sterku músagildrur fást í Kemi. Tilvalið fyrir ferðamenn að hafa nokkrar efst í bakpokanum á meðan á Íslandsdvöl þeirra stendur. Fást á góður verði, 710 krónur, og myndu örugglega gleðja margan vasaþjófinn. Margar ferðaskrifstofur lána faþegum mannbrodda og hverni væri að lána ferþegum vasaþjófafælur eins og þessar. Hef skoðað og þær klemma ansi fast.“



