Páskaskeyti frá Malaga:
–
Á miðvikudaginn, daginn fyrir skírdag, var fanga sleppt í Malaga á Spáni. Þó ekki íslenska Malagafanganum, enda er hann fyrir löngu sloppinn. Malagafanganum sem sleppt var í aðdraganda páska fékk náðun sem hluti af trúarathöfnum kaþólskra í Malaga í tilefni páskanna. Í eina og hálfa öld hefur þessi siður verið við lýði í þessari rammkaþólsku borg, tákn um mildi og mannúð.
–
Malagafanginn sem fékk lausn í gær hafði fengið tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir minniháttar ofbeldisbrot. Hann var losaður úr handjárnum fyrir framan gríðarlegan mannfjölda í miðborg Malaga sem fagnaði ógurlega.

Hvort íslenski Malagafanginn hafi verið svo heppinn að vera í Malaga um páskana og fá samskonar lausn er ekki vitað. En frægur varð hann á Íslandi og flestir sem komnir eru til ára sinna hugsa ti Malagafangans þegar þeir heyra talað um þessa suðrænu spænsku borg.



