HomeGreinarHVORT Á AÐ SEGJA FISKBOLLA EÐA FISKIBOLLA?

HVORT Á AÐ SEGJA FISKBOLLA EÐA FISKIBOLLA?

„Hvort á að segja fiskbolla eða fiskibolla?“ spyr Benedikt Björgvinsson á umræðuvefnum Málspjall sem Eiríkur Rögnvaldsson stjörnumálfræðingur stjórnar. Og ekki stendur á viðbrögðum:

Þorbjörn Tobbitenor Rúnarsson: „Skiptir bara engu máli. Mátt þess vegna kalla þetta hakkaðar fisk- og laukkúlur með kryddi. Alveg eins og brauðtertur mega heita samlokukökur. Hver og einn er vanur sínu. Mínar heita fiskibollur. Hver ein og einasta.“
Ármann Kári Guðjónsson: „Á mínum bæ er alltaf sagt fiskibolla. Annað er bara asnalegt.“
Margrét S. Jóhannsdóttir: „Ég hef ekki heyrt annað en fiskibolla, er nú orðin 84 ára og alin upp og bý enn í sjávarþorpi.“
Sveinbjrön Egilsson: „Mér er alveg sama. Ég borða bara matinn, spyr hann ekki að nafni.“
Hlín Önnudóttir: „Á mínu heimili var það þannig að fiskbollur í dós sem voru soðnar voru fiskbollur en hinar sem voru grófari og steiktar á pönnu voru fiskibollur. Mér fannst þetta bara mjög rökrétt.“
Emelía Kristjánsdóttir: „Mamma mín sagði alltaf ‘fiskabolla’.“
Margrét Hlíns Sveinsdóttir: „Fiskbollur og kjötbollur. Ekki fiskibollur og kjötibollur.“
Jóhann Örn Arnarson: „Fiskbolla úr einum fiski, fiskabollur úr mörgum fiskum.“
Svo kemur stjórnandi síðunnar, Eiríkur Rögnvaldsson, og kveður upp sinn dóm: „Fiskibolla“ er það venjulega, sérstaklega í seinni tíð, en „fiskbolla“ er líka algengt og jafnrétt.“
TENGDAR FRÉTTIR

STJÖRNUSPEKINGUR UM STÓRSTJÖRNU

Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur birti í kvöld stjörnuspá í tilefni af andláti Björgvins Halldórssonar - sem var og verður alltaf stjarna: - Hrútur, einyrki, skemmtikraftur og gleðigjafi. Beinskeyttur:...

BENSÍNSJOPPAN SEM SPRAKK

Frá Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði: - Það hefur gengið á með lægðum, óveðrum, tilheyrandi ófærð og sem betur fer einstaka góðviðrisdögum undanfarnar vikur sem hefur haft...

GAMLIR OG GLÚRNIR FERÐAKÓNGAR

Ferðaskrifstofan Ævintýraferðir Örnólfs hefur skipulagt ferðir og kynnt langt fram á næsta haust. Á bak við Ævintýraferðir stendur Örnólfur Árnason, landsþekktur rithöfundur og lífskúnstner,...

ÁRITUÐ BÓK DAVÍÐS TIL ÓLAFS RAGNARS Á UPPBOÐI

Eintak af bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, er á bókauppboði Foldar. Eintakið er áritað af Davíð til þáverandi forsetahjóna, Ólafs Ragnars...

MÓÐIR JÖRÐ FÓTBROTIN Á LANDSPÍTALA

Verkið Móðir jörð eftir Ásmund Sveinsson, sem er staðsett í gamla anddyri Landspítalans í Fossvogi á annarri hæð, er illa farið. Bæði móðir og...

70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Eftirmál, sem fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi stýra, vakti mikla athygli yfir páskana. Í þættinum er fjallað um morðið á...

VOPNAHLÉ – „RISASPARK Í PUNGINN“

"Jedúddamía. Hópur af geitasmölum í Íran hefur sigrað mesta herveldi sögunnar," segir Friðrik Indriðason, þrautreyndur blaðamaður, í tilefni af fréttum dagsins: - "Það sem Íran fær...

MÚSAGILDRUR GEGN VASAÞJÓFUM

Vasaþjófar herja á erlenda ferðamenn hér á landi og eru til vandræða. Friðrik Brekkan, þrautreyndur leiðsögumaður, er með lausn: "Þessar sterku músagildrur fást í Kemi....

FINNSK PÁSKAEGG

Svona páskaegg er hægt að fá í Finnlandi. Líta út eins og venjuleg egg í eggjabakka frá súkkulaðiframleiðandanum Fazer. Svo er skurnin fjarlægð og...

SNJÓKARLINN Á BEKKNUM

Miðbæjarlistin tekur á sig ýmsar myndir í Reykjavík. Hér situr snjókarl á bekk fyrir framan Drekann, söluturn á Njálsgötu. Líkt og blindfullur um miðjan...

HÁRHORNIÐ HREKST AF HLEMMI VEGNA HÚSALEIGU

Ein vinsælasta og ódýrasta rakarastofa Reykjavíkur, Hárhornið á Hlemmi, flytur sig um set eftir 29 ára á horninu á Hlemmi. Ástæðan er hækkandi húsaleiga...

MALAGAFANGA SLEPPT – MILDI OG MANNÚÐ

Páskaskeyti frá Malaga: - Á miðvikudaginn, daginn fyrir skírdag, var fanga sleppt í Malaga á Spáni. Þó ekki íslenska Malagafanganum, enda er hann fyrir löngu sloppinn....

Sagt er...

Veitingastaðurinn Forsetin á Laugavegi hefur verið seldur. Kaupandinn er úkraínskur kaupsýslumaður sem ætlar að halda rekstrinum áfram. Helgi Njálsson hefur rekið Forsetann ásamt konu...

Lag dagsins

Á þessum degi, 10. apríl 1912, lagði Titanic úr höfn í Southamton á Englandi í sína fyrstu ferð með stefnuna á New York. Þessi...