HomeGreinarVEITINGAHÚSARÝNI GUNNARS

VEITINGAHÚSARÝNI GUNNARS

„Á veitingastöðum virðast vertarnir telja að maturinn einn skipti máli. Eða mestu máli. Má vera. Mörg önnur atriði breyta hins vegar miklu um það hvort gesturinn fer sæll og saddur frá borði,“ segir Gunnar Salvarsson fjölmiðlamaður og ljósmyndari:

„Fernt kemur upp í hugann, tónlistin, glösin, hljóðvistin og þjónustan. Með góðum vinum úti að borða er fátt jafn ömurlegt og bassa- og trommudrunur úr hátölurum þegar löngunin er sú hjá gestunum er  að eiga notalegt kvöld og spjall um daginn og veginn. Falleg stór glös gera gæfumun, lítil vínglös eru óviðeigandi, jafnvel þótt ekki sé drukkið vín. Hljóðvistin er lykilatriði, á nokkrum stöðum verður skvaldrið í gestum svo yfirþyrmandi að það jaðrar við hættumörk á desibil skalanum. Og fólk nær ekki að tala saman, tengjast. Um þjónustuna þarf ekki að hafa mörg orð. Ef skammtímaminni þjóns leiðir til þess að gesturinn gleymist verður upplifunin aldrei ánægjuleg.“

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

KJARTAN SKOÐAR TOYOTA MEÐ SYNI SÍNUM

Bílaáhugamaður sendir myndskeyti: - Var á sýningu hjá Toyota sem bauð upp á bíla, kókakóla, frostpinna, kleinur, rúnstykki og kjúklingaspjót. Þar sá ég þessa tvo og...

PÁSKADAGUR Í RÚSSNESKU RÉTTTRÚNAÐARKIRKJUNNI

"Í dag er páskadagur hjá Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni sem ég er meðlimur í," segir Arnar Loftsson og birtir mynd af rússneskum páskamorgunverði sem eiginkona hans,...

STJÖRNUSPEKINGUR UM STÓRSTJÖRNU

Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur birti í kvöld stjörnuspá í tilefni af andláti Björgvins Halldórssonar - sem var og verður alltaf stjarna: - Hrútur, einyrki, skemmtikraftur og gleðigjafi. Beinskeyttur:...

BENSÍNSJOPPAN SEM SPRAKK

Frá Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði: - Það hefur gengið á með lægðum, óveðrum, tilheyrandi ófærð og sem betur fer einstaka góðviðrisdögum undanfarnar vikur sem hefur haft...

GAMLIR OG GLÚRNIR FERÐAKÓNGAR

Ferðaskrifstofan Ævintýraferðir Örnólfs hefur skipulagt ferðir og kynnt langt fram á næsta haust. Á bak við Ævintýraferðir stendur Örnólfur Árnason, landsþekktur rithöfundur og lífskúnstner,...

ÁRITUÐ BÓK DAVÍÐS TIL ÓLAFS RAGNARS Á UPPBOÐI

Eintak af bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, er á bókauppboði Foldar. Eintakið er áritað af Davíð til þáverandi forsetahjóna, Ólafs Ragnars...

MÓÐIR JÖRÐ FÓTBROTIN Á LANDSPÍTALA

Verkið Móðir jörð eftir Ásmund Sveinsson, sem er staðsett í gamla anddyri Landspítalans í Fossvogi á annarri hæð, er illa farið. Bæði móðir og...

70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Eftirmál, sem fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi stýra, vakti mikla athygli yfir páskana. Í þættinum er fjallað um morðið á...

VOPNAHLÉ – „RISASPARK Í PUNGINN“

"Jedúddamía. Hópur af geitasmölum í Íran hefur sigrað mesta herveldi sögunnar," segir Friðrik Indriðason, þrautreyndur blaðamaður, í tilefni af fréttum dagsins: - "Það sem Íran fær...

MÚSAGILDRUR GEGN VASAÞJÓFUM

Vasaþjófar herja á erlenda ferðamenn hér á landi og eru til vandræða. Friðrik Brekkan, þrautreyndur leiðsögumaður, er með lausn: "Þessar sterku músagildrur fást í Kemi....

FINNSK PÁSKAEGG

Svona páskaegg er hægt að fá í Finnlandi. Líta út eins og venjuleg egg í eggjabakka frá súkkulaðiframleiðandanum Fazer. Svo er skurnin fjarlægð og...

SNJÓKARLINN Á BEKKNUM

Miðbæjarlistin tekur á sig ýmsar myndir í Reykjavík. Hér situr snjókarl á bekk fyrir framan Drekann, söluturn á Njálsgötu. Líkt og blindfullur um miðjan...

Sagt er...

Sorphirða í SmáíðúðahverfinU í Reykjavík 1987. Öskukarlar voru sorphirðumenn þá kallaðir. Myndina tók Gunnar V. Andrésson stjörnuljósmyndari í Háagerði þar sem hann bjó sjálfur.

Lag dagsins

Á þessum degi, 12. apríl 1954, hljóðrituðu Bill Haley & His Comets súpersmellinn Rock Around the Clock og heimurinn rokkaði með. https://www.youtube.com/watch?v=ZgdufzXvjqw