Einbýlishúsið Hvammstangabraut 7 á Hvammstanga er til sölu og verðið án hliðstæðu – 48 milljónir. Húsið er skráð 127,9 fermetrar, byggt úr steinsteypu árið 1956 á 660 fermetra hornlóð. Frábær staðsetning, stutt í alla þjónustu.
Eignin er á tveimur hæðum. Á efri hæð eru stofa og þrjú svefnherbergi. Á neðri hæð eru forstofa og stofa, sjónvarpshol og borðstofa ásamt eldhúsi. Inn af eldhúsi er kyndiklefi/lítil geymsla.
Í garðinum er 15 fermetra upphitaður skúr.
Niðurfallsrör fyrir þakrennur fyrir húsið eru til og fylgja með húsinu.