Hljómsveitin Skítamórall fagnar 35 ára afmæli í vor en sveitin var stofnuð í apríl árið 1989 á Selfossi þegar drengirnir voru fjórán ára. Sveitin kom svo fram í fyrsta sinn vorið 1990.
Hljómsveitin er eitt stærsta nafna aldamótakynslóðarinnar og lög eins og Farin, Myndir, Svífum, Ennþá, Fljúgum áfram og fleiri fleiri eru fyrir löngu orðin einkennislög þessa kröftuga tímabils í íslenskri tónlist.
Hljómsveitin mun bjóða til sín sérstökum gestum í tilefni tímamótanna. Miðasala hefst á báða tónleikanna þann 1. desember næst komandi sem er dagur íslenskrar tónlistar – klukkan 12:00.