„Við setjum sumarsvip á dagskrá Samstöðvarinnar næstu vikunnar,“ segir Gunnar Smári Egilsson útvarpsstjóri Samstöðvarinnar og boðar breytingar:
„Þær Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Oddný Eir Ævarsdóttir munu koma að Rauða borðinu og stjórna því með Gunnari Smára Egilssyni. Og þær verða svo hluti af áhöfninni þegar haustdagskráin tekur við strax eftir verslunarmannahelgi.“