Hildigunnar H.H. Thorsteinsson hafði ekki fyrr verið ráðin nýr Veðurstofustjóri en hitastigið í Reykjavík hækkaði um 20 gráður – úr 10 stiga frosti í 10 stiga hita. Þetta er árangur án hliðstæðu á örfáum dögum. Hildigunnur er ráðin til 5 ára og ef áframhald verður á stefnir í hamfarahlýnun í borginni með tilheyrandi eldsvoðum og óáran áður en ráðningatími hennar rennur út.