Fasteignamógúll skrifar:
–
Til sölu er nú hús þeirra hjóna í Pelsinum, Esterar og Kalla, en hann er nýlega fallinn frá. Þarna hafa þau búið í áratugi.
Ásett verð er 470 milljónir. Ef kaupandi tekur 70% lán þá verða afborganir á því 2.859
þúsund á mánuði í fjörutíu ár en 141 milljón þarf að borga út og fást ekki lánaðar á húsið.
Ef maður leggur þessa upphæð inn á bankareikning með 10% ávöxtun þá fær maður 47 milljónir í vexti á ári eða 3.9 milljónir á mánuði. Má því segja að það kosti mann a.m.k. fjórar milljónir á mánuði að búa í húsinu fyrir þetta verð!
Gefur augaleið að sennilega eru ekki margir aðilar á Íslandi sem hafa ráð á húsinu enda
boðið til sölu af alþjóðlegri fasteignasölu og fasteignasalinn er sonur þeirra Esterar og Kalla, Styrmir Bjartur.