Tímaritið Myndlist á á Íslandi, 6. tölublað, er komið út: Áhrif myndlistar 2025.
Tímaritið, sem er gefið út á íslensku og ensku, veitir innsýn í það sem er efst á baugi á sviði íslenskrar samtímalistar.

„Þetta tölublað endurspeglar ferðalag listrænna hugmynda um samfélagið,“ segir ritstjórnin. Í blaðinu koma saman lykilraddir, gagnrýnin sjónarhorn og afgerandi augnablik sem mótuðu myndlistarsenuna á síðasta ári. Í blaðinu er einnig fjallað um tilnefningar og verðlaunahafa Íslensku myndlistarverðlaunanna 2026.
Sérstök áhersla er lögð á að skoða fyrirbærið listaverk sem boðbera hugmynda með því að rýna í hvernig skapandi hugsun tekur á sig mynd og verður sýnileg áður en hún festist í tímalínum, mælieiningum og sögulegri skráningu. Þannig varpar blaðið ljósi á lifandi tengsl listrænnar iðkunar og samfélagslegs veruleika.



