Mikael Torfason rithöfundur, fyrrverandi ristjóri DV, Séð og heyrt, Fréttablaðsins ofl. hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin ár og fengist við kvikmyndaskrif. Segir í viðtölum að hann komi aldrei aftur til Íslands. En nú snýr hann aftur í næstu viku í Bíó Paradís þegar hann fumýnir kvikmyndina Dimmalimm (Returning To Lulu) þar sem eiginkona hans, Stefanía Berndsen, fer með aðahlutverki:
Dimmalimm er lauslega byggð á leikritinu Medeu eftir Euripides. Hinn forni harmleikur byggði á mýtunni um Jason og Medeu og fór fyrst á svið árið 431 fyrir Krist. Þetta er klassísk saga og þemað á enn full erindi. Medea er útlendingur sem svikin er af manni sínum Jason með þeim afleiðingum að hún missir vitið.
Í Dimmalim er Medea íslensk 35 ára gömul kona sem kemur heim af geðsjúkrahúsi og lokar sig inni íbúð í Vínarborg. Þetta er dramatísk myndum íslenska konu að glíma við geðveiki í erlendri borg.
Leikstjóri myndarinnar er Mikael Torfason en hann skrifaði jafnframt handritið og sá um kvikmyndatöku því myndin var tekin í svokölluðu “lockdown” í Vínarborg. Mikael og kona hans, Stefanía Berndsen sem fer einmitt með aðalhlutverk Dimmalimm, voru svo mánuðum skiptir lokuð inni íbúð með dætrum sínum í Vín. Dæturnar, Ísold og Ída Berndsen, fara einnig með hlutverk í myndinni.
–



