Ein vinsælasta og ódýrasta rakarastofa Reykjavíkur, Hárhornið á Hlemmi, flytur sig um set eftir 29 ára á horninu á Hlemmi. Ástæðan er hækkandi húsaleiga sem verður ekki við unað.
Torfi heitinn Geirmundsson hárskeri stóð þarna vaktina öll þessi ár þangað til hann lést en Lilja dóttir hans tók þá við og hefur rekið ásamt góðu fólki. En húsaleigan er komin upp úr öllu valdi.

Lilja og hennar fólk hefur tryggt sér annað húsnæði örspöl frá, á Rauðarárstíg 27, í 200 metra fjarlægð. Næg bílastæði, meira pláss – og helmingi lægri húsaleiga. Þar verður opnað í sumar.



