HomeSagt erBERNSKUMINNING UM TÓMIÐ

BERNSKUMINNING UM TÓMIÐ

Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur lætur bernskuminningu svífa – um tómið:

tómið er óskaplegt
efnið í alheiminum svo lítið
og svo ótrúlega smátt
hugsum okkur
að milljón kílómetrar í raunheimi
séu millimetri í mannabyggð
þá væri sólin sandkorn
af grófara taginu
svona sem maður mundi finna fyrir í skó sínum
hér á borðshorninu í stofunni
jörðin rykkorn
15 sentimetrum frá sólu
annað rykkorn og nær sólu
væri þá Venus
sem nú brennur björtust og mildust
á bládjúpum kvöldhimni
Mars sem minnir stundum
á rauð stöðvunarljós á vegi
enn minna rykkorn og eilítið utar
Júpíter eins og sandkorn úr Hraunssandinum
sem við notuðum í fínpússningun
hér í gamla daga
78 sentimetra frá borðshorni
sólkerfið mundi rúmast alt
á framlengdu stofuborðinu
nema Neptúnus væri frammi á gangi
og snjóboltaskýið yst í sólkerfi
væri þá snjódrif úti á hlaði
og svo væri bara tómið
Síríus væri afklipptur haus af tútommu
einhvers staðar úti yfir Selvogsbanka
Arktúrus haus af fírtommu á Herðubreið
blástjarnan sem heitir Vega á útlensku
væri þá annar fírtommuhaus á Tindastóli
þar á milli ekkert nema tómið
aðalefni heimsins
eða efnisleysi heimsins
og ég bara lítill drengur
á leið í fjósið
lifandi í efninu
horfandi upp en ekki fram
og skilur ekki neitt
TENGDAR FRÉTTIR

HÁRHORNIÐ HREKST AF HLEMMI VEGNA HÚSALEIGU

Ein vinsælasta og ódýrasta rakarastofa Reykjavíkur, Hárhornið á Hlemmi, flytur sig um set eftir 29 ára á horninu á Hlemmi. Ástæðan er hækkandi húsaleiga...

MALAGAFANGA SLEPPT – MILDI OG MANNÚÐ

Páskaskeyti frá Malaga: - Á miðvikudaginn, daginn fyrir skírdag, var fanga sleppt í Malaga á Spáni. Þó ekki íslenska Malagafanganum, enda er hann fyrir löngu sloppinn....

ÍSLENSKAR PYLSUR Í NEW YORK TIMES

Ítarleg grein um íslenska pylsumenningu birtist í New York Times í gær undir fyrirsögninni "Inflation Hit Iceland Hard. Even It Beloved Hot Dog" -...

1. APRÍL Í BÓNUS

Nú getur þú loksins fengið íslenskt loft í Bónus. Takmarkað magn í boði.

PRETTY IN PINK

Ásdís Rán er líka komin í bleikan pels eins og Steinunn Ólína hefur verið að flagga á samfélagsmiðlum. Báðar voru þær í forsetaframboði fyrir...

SMÁRÍKIÐ VIÐ HLIÐ BÓNUS Á GRANDA

Smáríkið er að gera klárt fyrir að opna á Granda, á besta stað við hliðina á Bónus. Sagt er að Vínbúð ríkisins hafi stefnt...

ELÍSABET KLIPPIR Í HOLLYWOOD

Það segir sitt um hve langt Elísabet Ronaldsdóttir (60) er komin í Hollywood þegar nafn hennar birtist sem klippari einnar nýjustu bíómyndarinnar á Netflix,...

FÉ HEFUR HÆGÐIR

"Peningar eru eins og skítur: Þeir valda vexti og grósku ef vel er úr dreift, ef ekki sviðnar jörðin undan þeim og það er...

KONA Í RÖNDÓTTUM SUNDBOL – HVENÆR FARA EINHLEYPIR MENN Í SUND?

Rúmlega fertug kona, nýflutt aftur í vesturbæinn, birtir færslu á Vesturbæjarvefnum undir dulnefni og tekur fram að vonandi sé eftirfrandi ekki óviðeigandi: "Nenni ekki mikið...

BERGDÍS SENDIHERRA Í KÍNA

Bergdís Ellertsdóttir, þrautreyndur dipómat, er á leið til Kína til að taka við sem sendiherra Íslands þar. Sendiherraembættið í Peking er orðið eitt það...

VALUR Í VANDRÆÐUM

"Kæru vinir!" segir Valur Gunnarsson rithöfundur í pósti á samfélagsmiðlum en en Valur lenti í slysi og hrakförum í Afríku eins og hér var...

BLEIKA ÆÐIÐ

Bandaríski rapparinn Jaden Smith klæddist bleikri loðkápu á Tískuvikunni í París á dögunum. Þessa kápu kannast Íslendingar við af myndum sem leikkonan Steinunn Ólína...

Sagt er...

Það er kominn sumartími í Danmörku og þá lítur klukkan svona út.

Lag dagsins

Þeir eiga sama afmælisdag, Tommi á Búllunni (77) og Jakob Bjarnar Grétarsson (64) stjörnublaðamaður frá Eiríksstöðum í Jökuldal. Báðir elska þeir hamborgara með sínum...