Þann 17. janúar opnar samsýningin „VEÐRUN“ á verkum félaga í FÍSL – Félags íslenskra samtímaljósmyndara – í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2025.
Sýningunni er ætlað að leggja fram hugleiðingar um stöðu ljósmyndunar í samtímalist og í listasögunni. Sýningin kannar einnig hvernig hægt er að skilgreina ljósmyndun á óhefðbundinn hátt þar sem listamennirnir kanna tengsl mannsins við umhverfi sitt. Í verkunum sjáum við ummerki eftir manninn en mannveran er hvergi sjáanleg.
Sýningin kannar áhrif mannsins á náttúruna og umhverfið. Sýndar verða ljósmyndir af yfirgefnu landslagi þar sem við sjáum einungis óhlutbundin eða hlutbundin ummerki, ýmist í náttúrunni, innanhúss, í borgarlandslaginu, eða samfélagslegu samhengi.
Sýnendur eru:
- Einar Falur Ingólfsson
- Nina Zurier
- Stuart Richardson
- Eva Schram
- Hallgerður Hallgrímsdóttir
- Katrín Elvarsdóttir
- Bjargey Ólafsdóttir
- Bára Kristinsdóttir
- Jóna Þorvaldsdóttir
- Björn Árnason
- Kristín Sigurðardóttir
- María Kjartansdóttir
- Bragi Þór Jósefsson
- Valdimar Thorlacius
- Claire Paugam
- Þórsteinn Svanhildarson
Sýningarstjóri: Daría Sól Andrews
Sýningin er opin alla daga. Lokasýningardagur er sunnudagurinn 16. mars.