Tvær brennur verða haldnar í Reykjavík á þrettándanum, mánudaginn 6. janúar 2025, annars vegar við Ægisíðu og hins vegar við Gufunesbæ í Grafarvogi.
Austurmiðstöð kveður jólin með þrettándabrennu við Gufunesbæ og hefst dagskráin kl.18:00. Langleggur og Skjóða koma á svið kl.18:25 og jólasveinar mæta á svæðið um klukkan 18:40. Þrettándagleðinni lýkur svo með flugeldasýningu kl.19:00.
Á þrettándahátíð Vesturbæjar verður dagskráin eftirfarandi. Safnast verður saman við Melaskóla kl. 18:00, þar sem efnt verður til fjöldasöng. Um klukkan 18:15 verður gengið með blys að brennunni á Ægisíðu. Kveikt verður í brennunni kl. 18:30 og í lokin verður flugeldasýning um klukkan 18:45. Bannað er að skjóta upp flugeldum í nágrenni brennunnar vegna hættu sem af þeim getur skapast.