„Gaslýsing er fólgin í því að veruleiki einstaklingsins er ítrekað dreginn í efa,“ segir Ásdís Einarsdóttir sálfræðingur og útskýrir nánar:
„Hugtakið á uppruna sinn í bandarískri kvikmynd frá árinu 1944, Gaslight. Myndin byggir á ensku leikriti, Gas Light, frá 1938 eftir Patrick Hamilton, en þar segir af eiginmanni sem virðist tillitssamur og ástríkur, en grefur undan geðheilsu konu sinnar með því að fá hana til að efast um eigin upplifun af veruleikanum. Markmiðið er að konan „missi vitið“ og eiginmaðurinn erfi hana.
Titill myndarinnar og orðið „gaslighting“ vísar til þess að gaslýsingin í húsi þeirra hjóna virtist ávallt flökta þegar eiginkonan var skilin eftir ein heima.“