HomeGreinarHÓLMINN Í TJÖRNINNI TEKINN Í GEGN Á ÍS

HÓLMINN Í TJÖRNINNI TEKINN Í GEGN Á ÍS

Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í stóra hólmanum í Tjörninni eftir helgi en markmið framkvæmdanna er að styrkja fuglalífið á Tjörninni. Farið verður í aðgerðir til þess að bæta varpland í hólmanum, fyrir til að mynda endur, og einnig verða bakkavarnir endurnýjaðar.  Á meðan framkvæmdir standa yfir í desembermánuði þarf að loka fyrir aðgengi gangandi að Tjörninni til móts við Fríkirkjuna og verða settar upp hjáleiðamerkingar.

Áður hefur verið farið í svipaðar framkvæmdir í Þorfinnstjörn með góðum árangri þar sem kríuvarp hefur eflst merkjanlega. Með aðgerðunum fylgir Reykjavíkurborg eftir ráðleggingum líffræðinga sem vaktað hafa lífríki Tjarnarinnar um árabil.

Fjarlægja á efsta hluta núverandi yfirborðs af hólmanum, leggja út jarðvegsdúk, möl og jarðveg. Hluti hólmans verður þökulagður á ný. Það er gert til þess að draga úr sókn hvannar og annarra stórvaxinna tegunda sem draga úr gæðum varplands í hólmanum. Grjótkantur umhverfis hólmann verður endurhlaðinn til þess að draga úr rofi.

Frostið nýtt til framkvæmda

Stefnt er á að nýta frostakafla framundan til þess að fjarlægja efsta lagið af hólmanum og flytja efni út í hann. Það er gert nú þar sem flytja þarf efnið á ís. Til þess að ljúka seinasta hluta framkvæmda þarf að bíða þangað til vorar á ný. Þá verður hægt verður að ganga frá hleðslu umhverfis hólmann og tyrfa yfir valin svæði. Verklok eru áætluð í lok maí 2025.

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

„SKÖMMIN ER MÍN“ – JÓN ÓSKAR HORFÐI Á VIGDÍSI

"Skömmin er mín," segir myndlistamaðurinn Jón Óskar sem lærði frönsku í menntaskóla og var að horfa á marglofaða sjónvarpsþætti um Vigdísi forseta: "Ég var algjör...

TVEIR MILLJARÐAR FYRIR LÓÐ Í LAUGARDAL

Borgarráð hefur samþykkt að úthluta Þjóðarhöll ehf. byggingarétt á lóð Laugardalshallar við Engjaveg. Heildargreiðsla fyrir byggingarrétt og gatnagerðargjöld eru rúmir tveir milljarðar króna -...

VIÐBYGGING GLEYPIR HÚS BJARKAR Á GRETTISGÖTU

Engu er líkara en viðbygging við gamalt timburhús á Grettisgötu 40 sé hreinlega að gleypa það frá götu séð. Gamla húsið var eitt sinn...

DAUÐROTAÐUR KÖTTUR HEILLAR TÚRISTA Á HVERFISGÖTU

Vegfarandi sem leið átti um Hverfisgötu í dag rak augun í steinsofandi kött í útstillingarglugga verslunar. Hélt hann fyrst að kötturinn væri dauður, kannski...

VALKYRJURNAR KOMNAR Í LUNDABÚÐIRNAR

Valkyrjurnar þrjár sem slegið hafa í gegn í íslenskri pólitík eru komnar í lundabúðirnar í Reykjavík. Ekki er hægt að fá þær þrjár í...

HIS MASTER´S VOICE

Eitt frægasta vörumerki 20. aldarinnar; His Master's Voice. Hundurinn hét Nipper vegna þess að hann "nippaði" alltaf aftan í fótleggi fólks sem átti leið hjá....

TUNGLIN OG TRUMP

"Hvílíkir tímar sem við lifum á!," segir Guðmundur Franklín Jónsson Hægri grænn leiðsögumaður og frambjóðandi: "Sjaldgæfur stjarnfræðilegur atburður mun eiga sér stað daginn eftir (21....

UMMERKI EFTIR MANNINN EN MANNVERAN HVERGI SJÁANLEG

Þann 17. janúar opnar samsýningin "VEÐRUN" á verkum félaga í FÍSL – Félags íslenskra samtímaljósmyndara - í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem hluti af Ljósmyndahátíð Íslands...

TÍU LITLIR BANKASTRÁKAR Í KOLAPORTINU – 12.000 KRÓNUR

Þessi bók eftir Óttar Norðfjörð er uppseld fyrir löngu en eitt eintak er til í Kolaportinu og kostar 12.000 krónur.

VINNA MEÐ LITLUM FYRIRVARA

Þessi auglýsing birtist á samfélagsmiðlum undir fyrirsögninni Vinna á Selfossi með stuttum fyrirvara: Hæhæ. Ég er 45 ára karl frá Úkraínu sem nú bý einn...

BLINDRAFÉLAGIÐ MEÐ HUNDADAGATAL 2025

Blindradélagið hefur gefið út leiðsöguhundadagatalið 2025. Dagatalið fæst í ölum helstu verslunum Bónus og Nettó víðsvegar um landið og kostar 2.600 krónur. - Með styrkjum og...

JAPANSKUR PLOKKARI Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

Japanskur plokkari var í keppnisskapi að plokka á Skólavörðustíg. Hann var hingað kominn frá Egyptalandi þar sem hann plokkaði á götum Egypta. Næsti áfangi...

Sagt er...

DJQ, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum White Beans vegna skordýra sem fundust í vörunni. Baunirnar eru...

Lag dagsins

Enska söngkonan Sade er afmælisbarn dagsins (66). Fædd í Nígeríu en sló í gegn viða um heim með plötunni Diamond Life 1984. Áður hafði...