HomeGreinarSÉRFRÆÐINGUR Í SJOKKI EFTIR SIGUR TRUMPS

SÉRFRÆÐINGUR Í SJOKKI EFTIR SIGUR TRUMPS

Sigur Donalds Trumps hefur farið sérstaklega illa í sumt starfsfólk Reykjavíkurborgar. Kona sem titlar sig ,,sérfræðing í stjórnsýslusnatti” skrifar status á FacEbook, sem aðrir starfsmenn borgarinnar hafa áframdreift á samfélagsmiðlinum, þar sem hún harmar úrslitin. Nánar tiltekið segist sérfræðingurinn vera í áfalli eftir sigur Trumps og hafi hún ekki treyst sér fram úr fyrr en um hádegi á miðvikudaginn (virkur dagur) en þá hafi hún farið í vinnuna og skrifað langan FB-status.

Í Ráðhúsinu segist hún hafa mætt hverri samstarfskonunnin á fætur annarri ,,með sama þróttleysið“ og hún fann sjálf, „málað yfir andlitið“. Þannig gekk dagurinn fyrir sig í vinnunni í Ráðhúsinu þar sem konurnar sátu við tölvuskjána sína en með „reglulegu millibili heyrðist einhver segja setningar eins og ,,ég skil þetta ekki“, ,,ég trúi þessu ekki“ og ,,hvernig gat þetta gerst?“ Þannig gengu þær um Ráðhúsið ,,þar sem við litum hver á aðra með sama flata en leitandi svipnum“.

Sumir segja stjórnsýslu borgarinnar í molum. Það rennir stoðum undir slík sjónarmið ef starfsfólk lítur á störf sín sem ,,snatt“ og drattast ekki í vinnuna fyrr en upp úr hádegi til að skrifa langa Facebook statusa um áföll sín vegna mannabreytinga í Hvíta Húsinu í Washington DC. Ekki er öll vitleysan eins, myndi ræstitæknirinn segja sem kemst ekki undan störfum sínum sama hvað dynur á úti í Ameríku.

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

ÍSDROTTNINGIN Í SNJÓNUM

Ísdrottningin og forsetaframjóðandinn Ásdís Rán eyddi helginni á skíðum með Þórði Daníel Þórðarsyni í Bansko Ski Resort í Búlgaríu: "Bansko var að rokka um helgina...

BJÖSSI FANN LÍFSLÖNGUN AFTUR Á REYKJALUNDI

"Mikið er þetta líf nú undarlegt. Fyrir nokkrum mánuðum var ég þunglyndis kall sem sá engan tilgang með þessu brölti mínu gegnum lífið. Maður...

GALLABUXUR VALDA GEGGJUN – GO, JOHNNY GO!

Fréttir af gallabuxum Jóns Gnarr í þingsal Alþingis hafa valdið gamalkunnugum usla. Þetta hefur gerst víðar og oftar eins og Sveinn Markússon járnlistamaður í...

KRISTRÚN SETTI GUÐMUNDU Á VEGGINN

Kristrún Frostadóttir hefur skipt út málverki í skrifstofu forsætisráðherra eins og venja er með nýjum herrum. Kristrún hefur valið mynd eftir Guðmundu Andrésdóttur, geómetríska...

ÍSLENSKUR SKANDALL Á TENE – FRÉTTASKEYTI

Fréttaskeyti frá Tenerife - óskað er nafnleyndar: - Yfirstjórn Alvoteck fór í lúxúsferð til Tene. Á flottasta hótelið. Þar var mikið partý og sáust framkvæmdastjórar á...

INGVI ÞÓR ÞURFTI AÐ SANNA AÐ HANN VÆRI EKKI GERVIMENNI, HUNDUR EÐA…

"Óprúttinn aðili náð frá mér auðkenni og stofnaði undarlegan reikning á Instagram sem var eytt og Facebook-reikningi mínum síðan í leiðinni," segir Ingvi Þór...

ELDSPÝTUR Á GRUNDARSTÍG

Mynd af eldspýtustokk framan á rafmagnskassa við timburhús á Grundarstíg. Myndin sýnir Geysi í Haukadal og lykil. Lykillinn er vörumerki verksmiðjunnar sóló í Tékkóslóvakíu...

TVÍBURAR Í TAKT

Í tilefni af 60 ára afmæli tvíburabræðra (24. feb.) er loksins komið að fyrstu samsýningu þeirra í Gallerí Göngum í Háteigskirkju 22. feb. kl....

VINSÆLAR HOLUR

"Hér er mynd frá Hafnargötu í Keflavik, frá cirka 1975," segir Margeir Margeirsson athafnamaður frá Keflavík: "Þarna voru á þessum tíma svona holur í malbikinu...

SONUR GEORGS GUÐNA Í KLING&BANG

Hrafnkell Tumi, sonur hins goðsagnakennda málara Georgs Guðna (1961-2011), opnar sýningu í Kling & Bang í Marshallhúsinu á Granda laugardaginn 22. feb. Loftlína heitir...

STOP OVER NÆTURGAMAN OG LÍFSLEIKNI

Þetta listaverk var á vegi ferðamans í Kolaportinu. Hann féll fyrir því þegar búið var að þýða textana fyrir hann og sagði þá (í...

BRÚÐKAUPSMYND Í KOLAPORTINU

"Jesús blæs i seglin meðan brúðhjónin leggja árar í bát og stefna út í óvissuna," heitir þessi mynd. Fæst í Kolaportinu - aðeins þetta eina...

Sagt er...

"Gleðilegan konudag allar saman," segir fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson í kvennafans á eigin mynd.

Lag dagsins

Svavar Örn, hárgreiðslumeistari og eftirlæti fræga fólksins, er afmælisbarn helgarinnar (51). Stundum kallaður "gullgreiðan" og það með réttu. Hann fær óskalagið I'm Gonna Wash...