Kleopatra Kristbjörg, kennd við Gunnars majónes, er 67 ára í dag.
Klepatra var óþekkt í viðskiptum þegar Helen og Nancy, dætur Gunnars Jónssonar stofnanda Gunnars majónes, samþykktu að selja Kleópötru einni fyrirtækið og mun ekki króna hafa greidd fyrir heldur gefið út skuldabréf til tíu ára sem fyrirtækið Gunnarsson ehf. greiddi árlega af.
Majónessysturnar Helen og Nancy sögðu í blaðaviðtali eftir að gengið var frá viðskiptunum:„Kleopatra sér í gegnum alla og veit allt, næmari kona er ekki til. Hún segir eitthvað og það gerist og hún sér inn í framtíðina. Hún talar í dæmisögum og gerir allt eins og Jesús Kristur.“