Það er haustfiðringur í Jóhönnu V Þórhallsdóttur sem býður alla velkomna á sýningu sina í Gallerí Göngum, Háteigskirkju, sunnudaginn 20.október, milli kl 14-17. Sýningin ber heitið Haustfiðringur.
10 ár eru síðan Jóhanna hélt sína fyrstu einkasýningu, Þögli kórinn sem var í Listasal Anarkíu í Kópavogi. Hún hefur síðan haldið amk eina einkasýningu á ári. Jóhanna nam myndlist á Íslandi og í Þýskalandi og hefur jafnframt unnið til heiðursverðlauna í Austuríki fyrir verk sín. Sýningin Haustfiðringur var að mestu unnin í sumar í suður Þýskalandi.