Mæðginin Kristján Thorlacius (Króli) og Áslaug Thorlacius hafa opnað sýningu
sem heitir Gömul blöð og ennþá eldri. Á sýningunni eru verk sem eiga það sameiginlegt að vera öll unnin á pappír sem er kominn til ára sinna.
Sýningin er í galleríinu „Á milli“ í Ingólfsstræti 6. Þar var lengi áður verkstæði og sýningarrými Viktors heitins Smára forvarðar..