Flestir fengu sæti, þó ekki allir, í vöfflukaffi hjá Sigmundi Davíð í Hamraborg á sunnudaginn – troðfullt.
Sigmundur Davíð hefur farið með himinskautum í skoðanakönnunum upp á síðkastið og dansar í takt við fylgi sjálfs Sjálfstæðisflokksins þó þingflokkur hans sé aðeins tveggja manna. Hann stækkar verulega af að líkum lætur.
Fundargestir voru ánægðir með málflutning formannsins og vöfflurnar líka. Allt skal lagið hafa.