Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill vara við að gosmóða og gasmengun liggur nú yfir höfuðborginni en ríkjandi sunnanátt ber gosmengun til norðurs. Mun það ástand vara fram eftir degi skv. Veðurstofu Íslands en með aukinni úrkomu og vindi ættu loftgæði að batna eftir því sem líður á daginn. Nú í morgun mælast hækkuð gildi af fínna svifryki og einnig hækkuð gildi brennisteinsdíoxíðs sem berst frá eldgosinu.
Gosmóða eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins. Hún hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið. Ekki er mælt með því að láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður.
–
- Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
- Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
- Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni.
- Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun
- Ráðstafanir til varnar SO2 og annarri gosmengun mengun innandyra
- Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr.
- Hækkaðu hitastigið í húsinu.
- Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.