HomeGreinarKRAFTAVERK GULLA - 80 KÍLÓ HURFU

KRAFTAVERK GULLA – 80 KÍLÓ HURFU

Kristín Björg.
Kristín Björg.

„Myndirnar hér að ofan eru teknar með tæplega þriggja ára millibili. Gulli er þrjóskur maður og gefst ekki auðveldlega upp. Þessvegna hefur hann gegnum tíðina losað sig við tugi kílóa. Með ströngu mataræði og hreyfingu,“ segir Kristín Björg Þorsteinsdóttir fjölmiðlakona með meiru um eiginmann sinn, Gunnlaug Þór Pálsson. En ekkert gerist af sjálfu sér:

„En kílóin komu bara alltaf aftur og aftur og aftur. Fyrir þrem til fjórum árum tók hann þá ákvörðun að sækja um að komast í aðgerð og fá hjálp. Undirbúningur fyrir aðgerðina fólst í fyrirlestrum og fræðslu og gæta þurfti vel bæði að andlegu og líkamlegu hliðinni.

Í júní 2021 fórum við til Svíþjóðar og þar var gerð svo kölluð maga hjáveitu aðgerð.

Gulli er um190cm á hæð og losnaði við helming líkams þyngdarinnar. Hann burðast ekki lengur með 80 kg í daglegum athöfnum. Engin kæfisvefn, fínn blóðþrýstingur, stoðkerfið sterkt og aðrir fylgifiskar offitu horfnir.

Þetta var ekkert auðvelt í byrjun; fara þurfti eftir ströngum leiðbeiningum varðandi mataræði og nauðsynlegt að hreyfa sig. Það gerði hann og allt hefur gengið stór áfallalaust.

Gulli hefur unun af því að ganga og á góðum degi fer hann 10 til 12 kílómetra. Heilsan er góð og líf hans hefur tekið algjörum stakkaskiptum.“

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

GULLMOLI Á GRETTISGÖTU TIL LEIGU

Húsnæðið sem hýsti síðasta skósmiðinn í miðbæ Reykjavíkur á Grettisgötu 3 er nú til leigu. Þar var Þráinn skósmiður eitt sinn, svo tók Daníel...

BÓNUSHJÓL – LÚMSK AUGLÝSING

Þetta Bónushjól hefur sést víða í miðbæ Reykjavíkur. Tekur sig vel út í Bónuslitunum, lásinn er meira að segja í stíl og er lagt...

ÍSDROTTNINGIN Í SNJÓNUM

Ísdrottningin og forsetaframjóðandinn Ásdís Rán eyddi helginni á skíðum með Þórði Daníel Þórðarsyni í Bansko Ski Resort í Búlgaríu: "Bansko var að rokka um helgina...

BJÖSSI FANN LÍFSLÖNGUN AFTUR Á REYKJALUNDI

"Mikið er þetta líf nú undarlegt. Fyrir nokkrum mánuðum var ég þunglyndis kall sem sá engan tilgang með þessu brölti mínu gegnum lífið. Maður...

GALLABUXUR VALDA GEGGJUN – GO, JOHNNY GO!

Fréttir af gallabuxum Jóns Gnarr í þingsal Alþingis hafa valdið gamalkunnugum usla. Þetta hefur gerst víðar og oftar eins og Sveinn Markússon járnlistamaður í...

KRISTRÚN SETTI GUÐMUNDU Á VEGGINN

Kristrún Frostadóttir hefur skipt út málverki í skrifstofu forsætisráðherra eins og venja er með nýjum herrum. Kristrún hefur valið mynd eftir Guðmundu Andrésdóttur, geómetríska...

ÍSLENSKUR SKANDALL Á TENE – FRÉTTASKEYTI

Fréttaskeyti frá Tenerife - óskað er nafnleyndar: - Yfirstjórn Alvoteck fór í lúxúsferð til Tene. Á flottasta hótelið. Þar var mikið partý og sáust framkvæmdastjórar á...

INGVI ÞÓR ÞURFTI AÐ SANNA AÐ HANN VÆRI EKKI GERVIMENNI, HUNDUR EÐA…

"Óprúttinn aðili náð frá mér auðkenni og stofnaði undarlegan reikning á Instagram sem var eytt og Facebook-reikningi mínum síðan í leiðinni," segir Ingvi Þór...

ELDSPÝTUR Á GRUNDARSTÍG

Mynd af eldspýtustokk framan á rafmagnskassa við timburhús á Grundarstíg. Myndin sýnir Geysi í Haukadal og lykil. Lykillinn er vörumerki verksmiðjunnar sóló í Tékkóslóvakíu...

TVÍBURAR Í TAKT

Í tilefni af 60 ára afmæli tvíburabræðra (24. feb.) er loksins komið að fyrstu samsýningu þeirra í Gallerí Göngum í Háteigskirkju 22. feb. kl....

VINSÆLAR HOLUR

"Hér er mynd frá Hafnargötu í Keflavik, frá cirka 1975," segir Margeir Margeirsson athafnamaður frá Keflavík: "Þarna voru á þessum tíma svona holur í malbikinu...

SONUR GEORGS GUÐNA Í KLING&BANG

Hrafnkell Tumi, sonur hins goðsagnakennda málara Georgs Guðna (1961-2011), opnar sýningu í Kling & Bang í Marshallhúsinu á Granda laugardaginn 22. feb. Loftlína heitir...

Sagt er...

Það myndast langar raðir ferðamanna sem reyna að finna út úr greiðslukerfi borgarinnar í stöðumæla. Tíminn kostar peninga.

Lag dagsins

Svavar Örn, hárgreiðslumeistari og eftirlæti fræga fólksins, er afmælisbarn helgarinnar (51). Stundum kallaður "gullgreiðan" og það með réttu. Hann fær óskalagið I'm Gonna Wash...