Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti heimsótti Landnámssetrið í Borgarnesi þar sem hún hitti fyrir forstöðumanninn og félaga í leiklistinni um árabil, Kjartan Ragnarsson. Vigdís fékk kjötsúpu og var svo ánægð með að hún skildi frumsamda vísu eftir á servíettunni þegar hún kvaddi ásamt ferðafélögum sínum:
Í lúxus á Landnámssetri
Er lambakjötssúpan betri
En í London og Róm.
Þann laukrétt á dóm
Færðu í limru með gotneskrar letri
Með þökk!
– Vigdís Finnbogadóttir og ferðafélagar.