TÓNLISTARMENN UPP UM ALLA VEGGI Á SKAGANUM

“Á Akranesi er verið að vinna í vegglist útum allt, þar með talinn þetta mural á Gamla Kaupfélaginu eftir Bjössa Lú tileinkað tónlistarfólki frá Akranesi. Að sjá lógóið hjá harðkjarnapönk bandinu mínu á meðal Dúmbó & Steina og Tíbrá er svo mökk súrréalískt eitthvað,” segir Kristján Alexander Reiners Friðriksson söngvari í Gaddavír sem samanstendur af fimm vinum af Skaganum sem hafa spilað saman síðan árið 2010 og eru að fara að spila í Kaupmannahöfn 15. október.

Auglýsing