
“Nú erum við búinn að selja Kirkjustétt í Grafarholti, okkar fallega hús sem stendur við yndislega náttúruna í útjaðri borgarinnar, hér hefur okkur liðið vel en húsið var bara orðið og stórt fyrir okkur tvö og hundinn Krumma svo við erum byrjuð að leita fyrir okkur með eignir í miðborginni, í Þingholtum, Hlíðum, og í vestrinu en fátt um fína drætti,” segir myndlistamaðurinn Tolli Morthens og stefnir aftur í miðbæinn sem er honum vel kunnur frá fyrri tíð:
“En þetta er spennandi og við farin að skoða eignir sem eru í fjarska ansi flottar, eignir í gömlum virðulegum húsum og líta vel út á myndum. En þegar nær er komið og maður kemur inn í íbúðirnar sér maður að það er sitthvort myndir á netheimum og íbúð í raunheimum, hve raki og fúki getur verið verið lúmskur á bak við panelinn og hvað allt skreppur saman miðað við hve voldug og skínandi herbergin á myndum.
Svo nokkur vonbrigði hve sumar eignir í miðborginni eru einfaldlega komnar til ára sinna , hrumar og úr sér gengnar nema verðið því það er alltaf skínandi nýtt þótt það sé augljóst hve það er skakt að hús sem komin eru yfir hundrað ár og þarfnist mikilla endurbóta séu á sama verði og nýleg og ný hús og bara horft til staðsettningar og fermetra.
En þetta er engin blues , þvert á móti bara áhugavert verkefni og spennandi að leita okkur að eign “down town” og sjá fyrir sér lendingu í krauminu í miðborg Reykjavíkur.”