“Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, er sjötugur í dag,” segir á samfélagssíðu fyrirtækisins á Neskaupsstað:
–
“Þorsteinn varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1973 og lauk stýrimannaprófi árið eftir. Hann hóf nám í verkfræði við Háskóla Íslands árið 1974 og lauk síðan námi í skipaverkfræði frá Tækniháskólanum í Þrándheimi í Noregi árið 1980. Þorsteinn starfaði sem verkfræðingur hjá Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja á árunum 1980-1981 og síðan sem framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur á árunum 1981-1983. Árið 1983 tók hann þátt í kaupum á útgerðarfélaginu Samherja og hefur síðan verið forstjóri þess.
–
Samherji hefur vaxið og dafnað undir stjórn Þorsteins og er án efa eitt af öflugustu fyrirtækjum íslensks atvinnulífs. Samherji hefur byggt upp starfsemi erlendis og er almennt álitið á meðal framsæknustu sjávarútvegsfyrirtækja.
–
Samherji eignaðist fyrst hlut í Síldarvinnslunni eftir að Síldarvinnslan var skráð í Kauphöll Íslands árið 1994 og er nú stærsti hluthafinn. Þorsteinn Már tók sæti í stjórn Síldarvinnslunnar árið 2001 og hefur hann verið stjórnarformaður frá árinu 2003. Störf Þorsteins á vettvangi Síldarvinnslunnar hafa verið afar farsæl og nýtur hann mikils trausts innan fyrirtækisins. Vill Síldarvinnslan senda Þorsteini innilegustu kveðjur á afmælisdaginn.”
–