STÚLKUR MEIRI KLÁMKJAFTAR EN STRÁKAR Í BÚNINGSKLEFUNUM

    “Sem þátttakanda í íslenskri knattspyrnu í yfir 60 ár, sem leikmaður, þjálfari, stjórnarmaður og stuðningsmaður er mér misboðið,” segir Hörður Hilmarsson landsþekktur íþróttamaður og frumkvöðull í skipulagningu íþróttaferða fyrir íslendinga út fyrir landsteinana.

    Hilmari buðust miðar á landsleik Íslendinga og Armena í knattspyrnu á dögunum en hann komst ekki vegna sjötugsafmælis sem hann sótti. En hefði hvort sem er ekki farið:

    “Hvers vegna ekki? Ástæðurnar eru nokkrar og ekki öllum þóknanlegar. Who cares? Ég hef eins og aðrir karlkyns knattspyrnumenn þurft að sitja undir kommentum misviturra sérfræðinga á samfélagsmiðlum um neikvæða “klefamenningu” sem á víst að hafa átt sér stað í samfélagi karla í knattspyrnu. Ég sem leikmaður og þjálfari í áratugi kannast ekki við kvenfyrirlitningu eða annan negatívisma í búningsklefum karlmanna. Hins vegar upplifði ég það sem þjálfari kvennaliðs að yndislegar stúlkur, kvenkyns, voru miklu meiri klámkjaftar heldur en ég hafði kynnst í “strákaklefum”. Ég tók þessu sem þeirra húmor og hafði engar áhyggjur af, þótt ég roðnaði stundum. En mér er misboðið þegar okkur karlkyns fótboltamönnum er borið á brýn orðfar eða annað sem stuðlað getur að ofbeldi eða ofbeldismenningu. Sem bróðir 6 systra og faðir 3ja yndislegra dætra þá myndi aldrei hvarfla að mér að styðja eða verja e-ð sem flokkast gæti sem niðurlæging eða ofbeldi í garð stúlkna eða kvenna. En ég get heldur ekki stutt orð og aðgerðir mis heiðarlegra og mis viturra kvenna sem farið hafa offari og stuðlað að því að heiðarlegur og vandaður maður eins og Guðni Bergsson, var hrakinn úr starfi sem formaður KSÍ, fyrir litlar sakir, þrátt fyrir að hafa verið besti formaður KSÍ í áratugi. Guðni sinnti “litlu” félögunum á landsbyggðinni mun betur heldur en forverar hans í embætti höfðu gert og hann var einnig frábær fulltrúi Íslands út á við, t.d. gagnvart UEFA og FIFA. Þegar Guðni Bergs. var kjörinn formaður KSÍ þá fékk Ísland besta hugsanlega sendiherrann fyrir íslenska knattspyrnu sem völ var á. Það hefur ekki breyst.”

    Auglýsing