STENULAUS SKÖPUNARKRAFTUR

"Ekkert endanlegt svar mun nokkurntíman fást, engin fullkomin heild, heldur aðeins hér og nú og endalausir möguleikar."

Stefnulaust, fyrsta einkasýning Sigrúnar Höllu opnar laugardaginn 4. febrúar kl.
14-16 í Gallerí Göngum og stendur sýningin út febrúar. Sýningin samanstendur
af abstrakt vatnslitamyndum frá liðnu ári, sem oft bera með sér tilvísanir í
umhverfi og aðstæður. Upplausn efnis í liti og línur sem tvístrast um
myndflötinn stendur til marks um þann sköpunarkraft sem getur fæðst í
stefnuleysi. Niðurbrot felur í sér nýja möguleika á endurnýjun, við tökum nýjar
stefnur sem einnig leysast upp. Ekkert endanlegt svar mun nokkurntíman fást,
engin fullkomin heild, heldur aðeins hér og nú og endalausir möguleikar.

Sigrún Halla Ásgeirsdóttir (f. 1979) býr og starfar í Reykjavík. Hún hefur
bakgrunn í stafrænni hönnun, textílhönnun og listfræði. Sigrún Halla er
meðlimur í Textílfélagi Íslands og Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM).

Auglýsing