“Eitthvað skrítið kom fyrir mig þegar ég var að mynda miðnætursól Arnardals fyrir tveimur vikum,” segir Tanja Hotz og er enn að velta vöngum yfir þessari mynd:
–
“Þessi tiltekna sauðavera með tíu fætur birtist allt í einu fyrir framan myndavélina mína. Mig langaði að spyrja hvort einhver þekki þessa óvenjulegu kindategund? Eftir það reyndi ég að hlaupa á eftir henni en hún hljóp bara óvenju hratt og ég missti af henni. Ég hef ekki séð þessa veru síðan. Myndin er í upprunalegu ástandi og algjörlega óbreytt.”