Landssamtök stúdenta og samband Íslenskra framhaldsskólanema standa fyrir útifundi næstkomandi föstudag og alla föstudaga þar á efir undir yfir skriftinni ” Verkfall fyrir loftslagið”.
Efnt er til verkfalls fyrir loftslagið á Austurvelli næsta föstudag, þann 22. febrúar – og alla næstu föstudaga – á milli klukkan 12–13.
Stjórnvöld hafa sett sér aðgerðaráætlun í loftslagsmálum til ársins 2030 og gera meðal annars ráð fyrir kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Við viljum styðja við bakið á þeim aðgerðum, en betur má ef duga skal. Núverandi aðgerðaáætlun er ekki í samræmi við markmið um að halda hlýnun innan 1,5 gráðu á heimsvísu og við krefjumst aðgerða sem eru líklegar til að skila þeim árangri.
Ljóst er að stórauka þarf fjárframlög til loftslagsaðgerða. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC) reiknast til að verja þurfi 2,5% af heimsframleiðslu til loftslagsmála á ári til ársins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. Núverandi áætlun er upp á 0,05% af þjóðarframleiðslu á ári næstu fimm árin.
Við krefjumst þess að Ísland taki af skarið, hlusti á vísindamenn, lýsi yfir neyðarástandi og láti hið minnsta 2,5% af þjóðarframleiðslu renna beint til loftslagsaðgerða. Þar verður atvinnulífið einnig að axla ábyrgð og til þess verður ákveðin viðhorfsbreyting að eiga sér stað.
Við viljum afdráttarlausar aðgerðir. Núna. Fyrir komandi kynslóðir. Fyrir loftslagið.