RAGNAR KJARTANSSON ELDRI Í LISTHÚSI ÓFEIGS

Sýning á verkum eftir Ragnar Kjartansson eldri opnar í Listhús Ófeigs á Skólavörðustíg næstkomandi laugardag. “Eldri” er hann nefndur því að sonarsonur hans heitir líka Ragnar Kjartansson og er einn þekktasti listamaður þjóðarinnar í dag.

Ragnar Kjartansson – eldri og yngri.

Ragnar Kjartansson eldri var einn af þekktustu myndhöggvurum og keramikerum sinnar kynslóðar á Íslandi. Ennfremur hafði hann mikil áhrif í mynd­listarsamfélaginu um miðja 20. öld sem mynd­listarkennari og lærifaðir. Ragnar naut þess að dvelja við ströndina og mála með vatnslitum. Á þessari sýningu, sem haldin er í tilefni þess að nú eru 100 ár liðin frá fæðingu hans, má sjá nokkrar þeirra mynda sem hann vann síðustu æviárin og hafði stefnt á að sýna en vanst ekki tími til.

Auglýsing