OSUSHI TRYGGVAGÖTU – NÝIR EIGENDUR

Nýir eigendur - Davíð Tho og Rósa Huong.

Veitingastaðurinn Osushi hefur verið rekinn í 19 ár af systkinunum Önnu og
Kristjáni Þorsteinsbörnum en nú hafa tekið við rekstrinum í Tryggvagötu hjónin
Davíð Tho og Rósa Huong ásamt fjölskyldu þeirra.

Davíð og Rósa hafa unnið á Osushi síðastliðin 15 ár og þekkja reksturinn í
þaula. Dætur þeirra og vinir hafa einnig starfað á Osushi í gegnum tíðina.
Góðu fastakúnnarnir geta áfram reitt sig á gamla, góða sushi grunninn en
jafnframt átt von á nýungum.

Anna og Kristján koma til með að reka áfram Osushi að Reykjavíkurvegi 60 í
Hafnarfirði.

Auglýsing