ÓKEYPIS FYRIR FATLAÐA Í BÍLASTÆÐAHÚS

    Reykjavíkurborg hefur fallið frá gjaldtöku af handhöfum stæðiskorta fyrir hreyfihömluð í bílastæðahúsum sem rekin eru á vegum borgarinnar. Fyrst um sinn munu handhafar stæðiskorta fyrir hreyfihömluð þurfa að hringja í stjórnstöð og gefa upp númer stæðiskorts síns og bílnúmer við komu í bílastæðahús. Nánari upplýsingar um þessa breyttu framkvæmd og fyrirkomulag hennar hafa verið settar upp við inngang bílastæðahúsa Reykjavíkurborgar.

    Þegar er hafin vinna af hálfu Bílastæðasjóðs við tæknilegar útfærslur fyrir bílastæðahús Reykjavíkurborgar til að koma til móts við þessa breyttu framkvæmd til lengri tíma litið. Við þá útfærslu verður haft samráð við aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks.

    Auglýsing