Filipino Store ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum fisk, Round Scad (Galunggong) frá Kapamilya.
Ástæða innköllunar: Komið hefur í ljós að varan inniheldur þungmálminn kadmíum yfir mörkum.
Hver er hættan? Matvæli sem innihalda kadmíum yfir mörkum eru ekki örugg og geta verið heilsuspillandi.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Kapamilya
Vöruheiti:Round Scad (Galunggong)
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 23.06.2024
Nettómagn: 200-250 g
Geymsluskilyrði: Frystivara
Framleiðsluland: Indónesía
Heiti og heimlisfang fyrirtækis sem innkallar vöruna: Filipino Store ehf., Langarima 21-23, 112 Reykjavík.
Dreifing: Varan var einungis seld í verslun Filipino Store ehf., Langarima 21-23, og í vefverslun (www.filipino.is).
Leiðbeiningar til neytenda: Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í verslun Filipino Store ehf. gegn endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um innköllun: Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Filipino Store ehf. í síma 537 4646 eða í gegnum netfangið store@filipino.is.