KAFFISTOFA SAMHJÁLPAR LENGIR OPNUNARTÍMA

    Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að ganga til samstarfs við Samhjálp svo hægt verði að lengja opnunartíma kaffistofu Samhjálpar fyrir þá gesti sem nýta neyðarskýli og hafa miklar og flóknar þjónustuþarfir. Þetta er liður í vetraráætlun velferðarsviðs um opnun neyðarskýla. 

    Kaffistofa Samhjálpar er fyrir fólk sem glímir við fátækt af mismunandi ástæðum og þau sem eru í neyð. Kaffistofan er opin alla daga ársins mili klukkan 10 og 14 og þar er bæði morgunverður, kaffi, súpa og heitur matur daglega. 

    Nú er stefnt að því að kaffistofan verði opin milli 14 og 16.30 alla daga í desember 2023, janúar og febrúar 2024. Sú opnun verður sérstaklega fyrir gesti neyðarskýla sem hafa miklar og flóknar þjónustuþarfir.

    Heiða Björg fagnar áfanganum.

    Til framtíðar þurfum við að útfæra hvernig virkniúrræði við viljum hafa til staðar fyrir fólk sem er heimilislaust með miklar og flóknar þjónustuþarfir, hvort sem það reiðir sig á að gista í neyðarskýlum eða er komið með íbúð. En þetta er jákvætt skref og okkar starfsfólk verður á staðnum ásamt starfsfólki Samhjálpar. Við munum svo meta árangurinn af vetraropnun í samráði við hópinn,” segir Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs. 

    Áætlaður heildarkostnaður vegna þriggja mánaða vetraropnunar er 5,2 milljónir sem rúmast ekki innan fjárheimilda velferðarsviðs. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa látið í ljós áhuga á vetraropnun og verður þeim boðin aðild að henni gegn hlutdeild í kostnaði.  

    Auglýsing