{"id":4603,"date":"2024-12-13T12:04:22","date_gmt":"2024-12-13T12:04:22","guid":{"rendered":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/?p=4603"},"modified":"2024-12-13T12:04:40","modified_gmt":"2024-12-13T12:04:40","slug":"15-atridi-til-varnar-hjartaafalli","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/","title":{"rendered":"15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI"},"content":{"rendered":"<figure id=\"attachment_4605\" aria-describedby=\"caption-attachment-4605\" style=\"width: 150px\" class=\"wp-caption alignleft\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-4605 size-full\" src=\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/wp-content\/uploads\/2024\/12\/Bjossib-150x150-1.jpg\" alt=\"Ritstj\u00f3rinn\" width=\"150\" height=\"150\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-4605\" class=\"wp-caption-text\">Ritstj\u00f3rinn<\/figcaption><\/figure>\n<p>Bj\u00f6rn \u00d3feigsson ritstj\u00f3ri hjartalif.is skrifar um \u00f3v\u00e6nta \u00fe\u00e6tti sem geta auki\u00f0 l\u00edkur \u00e1 hjarta\u00e1falli.<\/p>\n<p>&#8222;Vi\u00f0 \u00feekkjum velflest \u00feessa \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e6tti eins og reykingar og l\u00e9legt matar\u00e6\u00f0i en \u00fea\u00f0 er \u00fdmislegt anna\u00f0 sem r\u00e9tt er a\u00f0 taka me\u00f0 \u00ed reikninginn og sumt af \u00fev\u00ed kemur kannski \u00e1 \u00f3vart. H\u00e9r teljum vi\u00f0 upp 15 atri\u00f0i sem vi\u00f0 gefum ekki endilega gaum \u00ed daglegu l\u00edfi sem s\u00e9rstakan \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e1tt.&#8220;<\/p>\n<h2 id=\"h-1-onaegur-svefn\" class=\"wp-block-heading\">1. \u00d3n\u00e6gur svefn<\/h2>\n<p>\u00d3n\u00e6gur svefn getur valdi\u00f0 \u00fereytu og pirringi en f\u00e6rri vita a\u00f0 svefnskortur getur l\u00edka auki\u00f0 l\u00edkur \u00e1 hjarta\u00e1falli. Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur einnar ranns\u00f3knar leiddu \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 einstaklingar sem almennt n\u00e1 ekki 6 klukkustunda svefni \u00e1 n\u00f3ttu voru tvisvar sinnum l\u00edklegri til a\u00f0 f\u00e1 hjarta\u00e1fall en \u00feeir sem n\u00e1\u00f0u a\u00f0 me\u00f0altali 6-8 klukkustunda svefni. \u00c1st\u00e6\u00f0an er l\u00e6knum ekki alveg lj\u00f3s en \u00fe\u00f3 er vita\u00f0 a\u00f0 svefnskortur getur leitt til h\u00e6rri bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdstings og aukinnar b\u00f3lgumyndunar sem hvorugt er gott fyrir.<\/p>\n<h2 id=\"h-2-migreni\" class=\"wp-block-heading\">2. M\u00edgreni<\/h2>\n<p>Einstaklingar sem f\u00e1 m\u00edgrenishausverki eru \u00ed aukinni h\u00e6ttu \u00e1 a\u00f0 f\u00e1 hjarta\u00e1fall s\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00e6vinni. L\u00edkurnar eru enn meiri hj\u00e1 \u00feeim sem f\u00e1 m\u00edgreni me\u00f0 \u00e1ru, einskonar r\u00f6skun \u00e1 skynjun e\u00f0a sj\u00f3n sem \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed a\u00f0draganada m\u00edgrenishausverkjar.<\/p>\n<h2 id=\"h-3-kuldi\" class=\"wp-block-heading\">3. Kuldi<\/h2>\n<p>Kuldi er \u00e1kve\u00f0i\u00f0 sjokk fyrir kerfi\u00f0 okkar. Mikil \u00fativera yfir vetrarm\u00e1nu\u00f0ina getur valdi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 slag\u00e6\u00f0arnar \u00ferengjast, sem gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 bl\u00f3\u00f0 \u00e1 erfi\u00f0ara me\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 til hjartans. Ofan \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00fearf hjarta\u00f0 a\u00f0 erfi\u00f0a meira til a\u00f0 vi\u00f0halda e\u00f0lilegu hitastigi l\u00edkamans. Hafir\u00f0u \u00e1hyggjur af \u00e1hrifum kulda \u00e1 hjarta- og \u00e6\u00f0akerfi\u00f0 getur veri\u00f0 gott a\u00f0 for\u00f0ast l\u00edkamlegt erfi\u00f0i, l\u00edkt og snj\u00f3mokstur \u00ed miklum kulda.<\/p>\n<h2 id=\"h-4-loftmengun-og-utblastur-bila\" class=\"wp-block-heading\">4. Loftmengun og \u00fatbl\u00e1stur b\u00edla<\/h2>\n<p>Hjarta\u00e1f\u00f6ll eru algengari \u00feegar loftmengun er mikil. F\u00f3lk sem andar a\u00f0 s\u00e9r \u00f3hreinu lofti a\u00f0 sta\u00f0aldri er l\u00edklegra til a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 hjartasj\u00fakd\u00f3ma og st\u00edfla\u00f0ar slag\u00e6\u00f0ar. \u00dea\u00f0 getur veri\u00f0 s\u00e9rstaklega h\u00e6ttulegt a\u00f0 sitja fastur \u00ed umfer\u00f0inni \u00fear sem a\u00f0 \u00fatbl\u00e1stur, loftmengun, pirringur og gremja fara saman.<\/p>\n<h2 id=\"h-5-stor-og-thung-maltid\" class=\"wp-block-heading\">5. St\u00f3r og \u00feung m\u00e1lt\u00ed\u00f0<\/h2>\n<p>Hugsa\u00f0u \u00feig vel um \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fa f\u00e6r\u00f0 \u00fe\u00e9r tvisvar e\u00f0a jafnvel \u00ferisvar \u00e1 diskinn \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 getur haft sl\u00e6m \u00e1hrif \u00e1 fleira en bara mittism\u00e1li\u00f0. \u00deegar \u00fe\u00fa bor\u00f0ar miki\u00f0 magn matar \u00ed einni lotu lei\u00f0ir \u00fea\u00f0 til h\u00e6rra magns streituhorm\u00f3nsins noradrenal\u00edns \u00ed l\u00edkamanum, sem getur h\u00e6kka\u00f0 bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdsting, valdi\u00f0 hra\u00f0ari hjartsl\u00e6tti og jafnvel komi\u00f0 af sta\u00f0 hjarta\u00e1falli \u00ed \u00e1kve\u00f0num tilfellum. Mj\u00f6g feitar m\u00e1lt\u00ed\u00f0ir geta l\u00edka gert \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 bl\u00f3\u00f0fita eykst hratt sem getur leitt til t\u00edmabundinna \u00e6\u00f0askemmda.<\/p>\n<h2 id=\"h-6-sterkar-tilfinningar-godar-og-slaemar\" class=\"wp-block-heading\">6. Sterkar tilfinningar, g\u00f3\u00f0ar og sl\u00e6mar<\/h2>\n<p>Rei\u00f0i, sorg og streita eru \u00feekktar orsakir hjartavandam\u00e1la en f\u00e6rri vita a\u00f0 sterkar tilfinningar tengdar gle\u00f0ilegum atbur\u00f0um, l\u00edkt og \u00f3v\u00e6ntri afm\u00e6lisveislu, br\u00fa\u00f0kaupi e\u00f0a f\u00e6\u00f0ingu barnabarns, geta einnig leitt til hjarta\u00e1falls.<\/p>\n<h2 id=\"h-7-skyndileg-eda-mikil-areynsla\" class=\"wp-block-heading\">7. Skyndileg e\u00f0a mikil \u00e1reynsla<\/h2>\n<p>\u00dea\u00f0 hefur j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 hjarta- og \u00e6\u00f0akerfi\u00f0 til lengri t\u00edma liti\u00f0 a\u00f0 koma s\u00e9r \u00ed gott l\u00edkamlegt form en \u00fea\u00f0 getur \u00fe\u00f3 veri\u00f0 h\u00e6ttulegt a\u00f0 fara of geyst af sta\u00f0. Um 6% allra hjarta\u00e1falla m\u00e1 rekja til of mikillar l\u00edkamlegrar \u00e1reynslu. L\u00edkamleg \u00e1reynsla getur veri\u00f0 g\u00f3\u00f0 lei\u00f0 til a\u00f0 losa um streitu en \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00f3 s\u00e9rlega mikilv\u00e6gt a\u00f0 ofreyna sig ekki \u00feegar ma\u00f0ur er rei\u00f0ur e\u00f0a \u00ed uppn\u00e1mi.<\/p>\n<h2 id=\"h-8-kvef-eda-flensa\" class=\"wp-block-heading\">8. Kvef e\u00f0a flensa<\/h2>\n<p>Vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 \u00f3n\u00e6miskerfisins vi\u00f0 veikindum geta valdi\u00f0 b\u00f3lgu sem ska\u00f0a\u00f0 getur hjarta og slag\u00e6\u00f0ar. Ein ranns\u00f3kn leiddi \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 einstaklingar me\u00f0 \u00f6ndunarf\u00e6ras\u00fdkingar v\u00e6ru tvisvar sinnum l\u00edklegri en a\u00f0rir til a\u00f0 f\u00e1 hjarta\u00e1fall. L\u00edkurnar f\u00f3ru \u00fe\u00f3 ni\u00f0ur \u00ed e\u00f0lilegt horf nokkrum vikum eftir a\u00f0 \u00f3n\u00e6miskerfi\u00f0 haf\u00f0i unni\u00f0 bug \u00e1 s\u00fdkingunni. T\u00ed\u00f0ni hjarta\u00e1falla er einnig h\u00e6rri \u00e1 t\u00edmum flensufaraldra, \u00f6nnur g\u00f3\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 f\u00e1 flensusprautu.<\/p>\n<h2 id=\"h-9-astmi\" class=\"wp-block-heading\">9. Astmi<\/h2>\n<p>L\u00edkurnar \u00e1 hjarta\u00e1falli eru 70% h\u00e6rri \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra sem klj\u00e1st vi\u00f0 lungnasj\u00fakd\u00f3ma. Aukin \u00e1h\u00e6tta er til sta\u00f0ar jafnvel \u00fe\u00f3 notast s\u00e9 vi\u00f0 inn\u00f6ndunart\u00e6ki til a\u00f0 halda sj\u00fakd\u00f3mnum \u00ed skefjum. Vegna astmans g\u00e6ti s\u00fa tilhneiging veri\u00f0 til sta\u00f0ar a\u00f0 hunsa snemmb\u00fain merki um hjarta\u00e1fall, l\u00edkt og \u00feyngsli fyrir brj\u00f3sti. L\u00e6knar vita ekki enn hvort \u00f6ndunarf\u00e6rasj\u00fakd\u00f3mar valdi hjarta\u00e1f\u00f6llum e\u00f0a hvort a\u00f0 b\u00e1\u00f0ir sj\u00fakd\u00f3mar eigi s\u00e9r einfaldlega sameiginlega ors\u00f6k: b\u00f3lgu.<\/p>\n<h2 id=\"h-10-ad-fara-fram-ur-ruminu-a-morgnana\" class=\"wp-block-heading\">10. A\u00f0 fara fram \u00far r\u00faminu \u00e1 morgnana<\/h2>\n<p>Hjarta\u00e1f\u00f6ll eru algengari \u00e1 morgnana. Heilinn kemur af sta\u00f0 horm\u00f3nafl\u00e6\u00f0i \u00ed l\u00edkamanum sem hj\u00e1lpar \u00fe\u00e9r a\u00f0 vakna en veldur einnig auknu \u00e1lagi \u00e1 hjarta\u00f0. V\u00f6kvab\u00faskapur l\u00edkamans er jafnframt \u00ed l\u00e1gmarki eftir langan svefn, sem gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 hjarta\u00f0 \u00fearf a\u00f0 erfi\u00f0a meira.<\/p>\n<h2 id=\"h-11-hamfarir\" class=\"wp-block-heading\">11. Hamfarir<\/h2>\n<p>Ranns\u00f3knir hafa s\u00fdnt a\u00f0 t\u00ed\u00f0ni hjarta\u00e1falla eykst eftir miklar hamfarir e\u00f0a h\u00f6rmungar, l\u00edkt og jar\u00f0skj\u00e1lfta e\u00f0a hry\u00f0juverka\u00e1r\u00e1sir. Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur ranns\u00f3kna eru athyglisver\u00f0ar a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 ekki m\u00e1 einungis greina aukna t\u00ed\u00f0ni fyrst eftir vi\u00f0komandi atbur\u00f0i, heldur \u00ed allt a\u00f0 nokkur \u00e1r \u00e1 eftir. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 ekki s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 for\u00f0ast sl\u00edkar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur me\u00f0 \u00f6llu m\u00e1 gera \u00fdmislegt til a\u00f0 draga \u00far \u00feeirri miklu streitu sem fylgir, t.d. a\u00f0 tryggja n\u00e6ga hv\u00edld og hreyfingu.<\/p>\n<h2 id=\"h-12-kynlif\" class=\"wp-block-heading\">12. Kynl\u00edf<\/h2>\n<p>L\u00edkt og l\u00edkamleg \u00e1reynsla hefur kynfer\u00f0isleg virkni veri\u00f0 tengd auknum l\u00edkum \u00e1 hjarta\u00e1falli. Tengslin eru \u00fe\u00f3 afar veik, s\u00e9rstaklega \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra sem eru vi\u00f0 g\u00f3\u00f0a l\u00edkamlega heilsu. \u00cd flestum tilfellum er kynl\u00edf mikilv\u00e6gur og heilbrig\u00f0ur hluti af l\u00edfinu en mikilv\u00e6gt er a\u00f0 tala vi\u00f0 l\u00e6kni s\u00e9u \u00e1hyggjur til sta\u00f0ar.<\/p>\n<h2 id=\"h-13-ithrottaahorf\" class=\"wp-block-heading\">13. \u00cd\u00fer\u00f3tta\u00e1horf<\/h2>\n<p>\u00cd\u00fer\u00f3ttai\u00f0kun getur valdi\u00f0 hjarta\u00e1falli en f\u00e6rri vita a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 einnig vi\u00f0 um \u00ed\u00fer\u00f3tta\u00e1horf. \u00c1ri\u00f0 2006 m\u00e1tti greina aukna t\u00ed\u00f0ni hjarta\u00e1falla \u00ed \u00de\u00fdskalandi \u00ed kringum leiki \u00fe\u00fdska karlalandsli\u00f0sins \u00e1 heimsmeistaram\u00f3tinu \u00ed knattspyrnu. Aukna t\u00ed\u00f0ni banv\u00e6nna hjarta\u00e1falla m\u00e1tti einnig greina \u00ed Los Angeles eftir Ofursk\u00e1lina \u00e1ri\u00f0 1980, \u00fear sem Los Angeles Rams tapa\u00f0i. Banv\u00e6num hjarta\u00e1f\u00f6llum f\u00e6kka\u00f0i hins vegar \u00ed Los Angeles eftir Ofursk\u00e1lina \u00e1ri\u00f0 1984, \u00fear sem Los Angeles Raiders vann.<\/p>\n<h2 id=\"h-14-afengisneysla\" class=\"wp-block-heading\">14. \u00c1fengisneysla<\/h2>\n<p>Gjarnan er tala\u00f0 um a\u00f0 eitt rau\u00f0v\u00ednsglas \u00e1 dag hafi j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 hjarta\u00f0 en \u00f3h\u00f3fleg neysla \u00e1fengis hefur \u00fe\u00f3 \u00f6fug \u00e1hrif. H\u00fan getur me\u00f0 t\u00ed\u00f0 og t\u00edma leitt til \u00fdmissa \u00fe\u00e1tta sem hafa sl\u00e6m \u00e1hrif \u00e1 hjarta\u00f0, l\u00edkt og h\u00e6rri bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdstings, aukins magns sl\u00e6ms k\u00f3lester\u00f3ls \u00ed bl\u00f3\u00f0inu og \u00feyngdaraukningar. \u00dea\u00f0 er ekki einungis ofneysla \u00e1fengis yfir lengri t\u00edma sem hefur sl\u00e6m \u00e1hrif, \u00fev\u00ed ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur einnar ranns\u00f3knar bentu til \u00feess a\u00f0 auknar l\u00edkur v\u00e6ru \u00e1 hjarta\u00e1falli \u00ed viku eftir staka n\u00f3tt ofdrykkju.<\/p>\n<h2 id=\"h-15-kaffidrykkja\" class=\"wp-block-heading\">15. Kaffidrykkja<\/h2>\n<p>L\u00edkt og neysla \u00e1fengis hefur kaffidrykkja s\u00edna kosti og galla. Koff\u00edni\u00f0 \u00ed kaffinu h\u00e6kkar bl\u00f3\u00f0\u00fer\u00fdsting til skamms t\u00edma, sem getur valdi\u00f0 hjarta\u00e1falli, s\u00e9rstaklega hj\u00e1 \u00feeim sem ekki drekka kaffi a\u00f0 sta\u00f0aldri e\u00f0a eru \u00ed aukinni h\u00e6ttu \u00e1 a\u00f0 f\u00e1 hjarta\u00e1fall af \u00f6\u00f0rum \u00e1st\u00e6\u00f0um. Heilt yfir vir\u00f0ist \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki hafa sl\u00e6m \u00e1hrif \u00e1 hjarta\u00f0 a\u00f0 drekka einn til tvo kaffibolla \u00e1 dag.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Bj\u00f6rn \u00d3feigsson ritstj\u00f3ri hjartalif.is skrifar um \u00f3v\u00e6nta \u00fe\u00e6tti sem geta auki\u00f0 l\u00edkur \u00e1 hjarta\u00e1falli. &#8222;Vi\u00f0 \u00feekkjum velflest \u00feessa \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e6tti eins og reykingar og l\u00e9legt matar\u00e6\u00f0i en \u00fea\u00f0 er \u00fdmislegt anna\u00f0 sem r\u00e9tt er a\u00f0 taka me\u00f0 \u00ed reikninginn og sumt af \u00fev\u00ed kemur kannski \u00e1 \u00f3vart. H\u00e9r teljum vi\u00f0 upp 15 atri\u00f0i sem vi\u00f0 gefum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":4604,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[31],"tags":[],"class_list":{"0":"post-4603","1":"post","2":"type-post","3":"status-publish","4":"format-standard","5":"has-post-thumbnail","7":"category-greinar"},"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v22.0 - https:\/\/yoast.com\/wordpress\/plugins\/seo\/ -->\n<title>15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI &#8211; Eir\u00edkur J\u00f3nsson<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI &#8211; Eir\u00edkur J\u00f3nsson\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Bj\u00f6rn \u00d3feigsson ritstj\u00f3ri hjartalif.is skrifar um \u00f3v\u00e6nta \u00fe\u00e6tti sem geta auki\u00f0 l\u00edkur \u00e1 hjarta\u00e1falli. &#8222;Vi\u00f0 \u00feekkjum velflest \u00feessa \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e6tti eins og reykingar og l\u00e9legt matar\u00e6\u00f0i en \u00fea\u00f0 er \u00fdmislegt anna\u00f0 sem r\u00e9tt er a\u00f0 taka me\u00f0 \u00ed reikninginn og sumt af \u00fev\u00ed kemur kannski \u00e1 \u00f3vart. H\u00e9r teljum vi\u00f0 upp 15 atri\u00f0i sem vi\u00f0 gefum [&hellip;]\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Eir\u00edkur J\u00f3nsson\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2024-12-13T12:04:22+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2024-12-13T12:04:40+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/wp-content\/uploads\/2024\/12\/hjartastopp.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"400\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"267\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"eir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"eir\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"7 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\/\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/\",\"url\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/\",\"name\":\"15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI &#8211; Eir\u00edkur J\u00f3nsson\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#website\"},\"datePublished\":\"2024-12-13T12:04:22+00:00\",\"dateModified\":\"2024-12-13T12:04:40+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#\/schema\/person\/308afa1d0e201918034e31b1da4f07a5\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/\"]}]},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#website\",\"url\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/\",\"name\":\"Eir\u00edkur J\u00f3nsson\",\"description\":\"Eir\u00edkur J\u00f3nsson | EIR eirikurjonsson.is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":\"required name=search_term_string\"}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#\/schema\/person\/308afa1d0e201918034e31b1da4f07a5\",\"name\":\"eir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#\/schema\/person\/image\/\",\"url\":\"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/b6748316a4400053a1fa9f4694b38d294dc5da6f4bacc727742bd8f3e689f87c?s=96&d=mm&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/b6748316a4400053a1fa9f4694b38d294dc5da6f4bacc727742bd8f3e689f87c?s=96&d=mm&r=g\",\"caption\":\"eir\"},\"url\":\"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/author\/eir\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI &#8211; Eir\u00edkur J\u00f3nsson","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI &#8211; Eir\u00edkur J\u00f3nsson","og_description":"Bj\u00f6rn \u00d3feigsson ritstj\u00f3ri hjartalif.is skrifar um \u00f3v\u00e6nta \u00fe\u00e6tti sem geta auki\u00f0 l\u00edkur \u00e1 hjarta\u00e1falli. &#8222;Vi\u00f0 \u00feekkjum velflest \u00feessa \u00e1h\u00e6ttu\u00fe\u00e6tti eins og reykingar og l\u00e9legt matar\u00e6\u00f0i en \u00fea\u00f0 er \u00fdmislegt anna\u00f0 sem r\u00e9tt er a\u00f0 taka me\u00f0 \u00ed reikninginn og sumt af \u00fev\u00ed kemur kannski \u00e1 \u00f3vart. H\u00e9r teljum vi\u00f0 upp 15 atri\u00f0i sem vi\u00f0 gefum [&hellip;]","og_url":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/","og_site_name":"Eir\u00edkur J\u00f3nsson","article_published_time":"2024-12-13T12:04:22+00:00","article_modified_time":"2024-12-13T12:04:40+00:00","og_image":[{"width":400,"height":267,"url":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/wp-content\/uploads\/2024\/12\/hjartastopp.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"eir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":"eir","Est. reading time":"7 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/","url":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/","name":"15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI &#8211; Eir\u00edkur J\u00f3nsson","isPartOf":{"@id":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#website"},"datePublished":"2024-12-13T12:04:22+00:00","dateModified":"2024-12-13T12:04:40+00:00","author":{"@id":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#\/schema\/person\/308afa1d0e201918034e31b1da4f07a5"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/"]}]},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/2024\/12\/13\/15-atridi-til-varnar-hjartaafalli\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"15 ATRI\u00d0I TIL VARNAR HJARTA\u00c1FALLI"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#website","url":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/","name":"Eir\u00edkur J\u00f3nsson","description":"Eir\u00edkur J\u00f3nsson | EIR eirikurjonsson.is","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/?s={search_term_string}"},"query-input":"required name=search_term_string"}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#\/schema\/person\/308afa1d0e201918034e31b1da4f07a5","name":"eir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/#\/schema\/person\/image\/","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/b6748316a4400053a1fa9f4694b38d294dc5da6f4bacc727742bd8f3e689f87c?s=96&d=mm&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/b6748316a4400053a1fa9f4694b38d294dc5da6f4bacc727742bd8f3e689f87c?s=96&d=mm&r=g","caption":"eir"},"url":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/author\/eir\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4603","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4603"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4603\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4606,"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4603\/revisions\/4606"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media\/4604"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4603"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4603"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/eirikurjonsson.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4603"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}