Fyrrum foreti Íslands hefur líkt núverandi utanríksráðherra við götustelpu í tali. Jóna Fanney Friðriksdóttir reis með réttu undir nafninu götustelpa á Hverfisgötu fyrir skemmstu:
–
Í sumar lenti ég í heldur óskemmtilegri uppákomu á Hverfisgötunni, á háannatíma. Bíllinn minn, sem er í langtímarekstrarleigu, ákvað skyndilega að hann færi ekki fetinu lengra. Ég setti neyðarljósin á og hringdi samstundis í leigufyrirtækið. Þar var allt sett á fullt og mér lofað aðstoð innan tíu mínútna, sem stóðst.
–
Á meðan var Hverfisgatan meira og minna lokuð í vesturátt í korter og ég, nauðug viljug, komin í hlutverk umferðarstjóra. Jafnframt svipaðist ég um eftir einhverjum sem gæti hjálpað mér að ýta bílnum úr vegi.
–
Og þá gerðist nokkuð skemmtilegt. Fólk fór að streyma að til að hjálpa. Strætisvagn, með fullan vagn af fólki – úr gangstæðri átt – stöðvaði og bílstjórinn steig út: „You need help?“ Já, takk!
–
En ekki voru allir á sömu blaðsíðu. Á meðan við reynum að mjaka bílnum upp á gangstétt við danska sendiráðið – birtist skyndilega ökumaður út frá hliðargötu, Klapparstíg, gjörsamlega í sínum eigin heimi. Þar var herra ÓRG, fyrrum forseti lýðveldisins við stýrið. Og á meðan við hin stóðum í miðjum björgunaraðgerðum hafði hann aðeins eitt markmið – að komast áfram leiðar sinnar.
–
Ég baðaði út öngum til að vara hann við, en hann lét sér fátt um finnast og ók áfram, svo nærri mér að litlu munaði að hann keyrði mig niður. Sjálfa götustelpuna.
–
Þarna mættust sem sagt tveir ólíkir heimar á Hverfisgötunni: Annars vegar fólk sem lagði allt til hliðar til að hjálpa ókunnugri manneskju og hins vegar maður sem telur sig ekki þurfa að taka neitt tillit til eins eða neins.
–
Hvar var samkennd fyrrum forseta lýðveldisins við þessar aðstæður? Það eina sem skipti ÓRG máli var að komast áfram, fremur en að sýna samfélagslega ábyrgð og aðstoða samborgara sína.
–
Hvað lá á – og hvert var hann að fara?






