Forlagið fagnar stórum áfanga í útgáfusögu Arnaldar Indriðasonar sem verið hefur á toppnum í 30 ár heima og erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar á 45 tungumál og selst í vel yfir 20 milljónum eintaka.

Sem þakklætisvott og til að fagna þrítugustu bókinni og nýrri aðalsöguhetju bjóða Forlagið og Arnaldur í bíó á kvikmyndina Chinatown með Jack Nicholson og Faye Dunaway í Bíó Paradís þann 4. nóvember kl. 19. Arnaldur verður á staðnum.






