Vinsæll viðskiptavinur sendir póst:
–
Viðskiptaráð er líklega einu hagsmunasamtökin hér á landi sem óttast ekkert að stíga óþyrmilega á tær annarra í þjóðfélaginu en eigin félaga. Enda er baklandið stórt, öll helstu stórfyrirtæki landsins standa að baki Viðskiptaráði og beita því fyrir sig í sínum villtustu draumum.
–
Nýjasta útspil Viðskiptaráðs er að krefjast þess að náttúruverndarsjónarmið fái ekki lengur að trufla virkjanaáform. Viðskiptaráð telur að tvöfalda þurfi orkuframleiðslu landsins og þá þýði ekkert að dekra við óbyggð víðernin. Umhverfisverndarfólk hefur reyndar ekki tekið þessum hugmyndum þegjandi og látið Viðskiptaráð heyra það óþvegið á Facebook síðu þess.
–
Meðal annarra umdeildra tillagna Viðskiptaráðs er að taka RÚV af auglýsingamarkaði, hefja olíuleit á Drekasvæðinu, hætta ríkisstuðningi við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög, hverfa frá samkomulagi um kaup á losunarheimildum, hætta við leigubremsu, afturkalla vinnutímastyttinguna og leggst gegn því að orlofs- og desemberuppbætur til lífeyrisþega verði lögfestar. Þá er Viðskiptaráð afar gagnrýnið á flestallt sem Samkeppniseftirlitið gerir, enda snertir það einatt aðildarfyrirtæki ráðsins og heftir getu þeirra til að misnota markaðsráðandi stöðu eða skipta með sér mörkuðum. Þessu er svo öllu tryggilega komið til skila í gegnum Morgunblaðið.
–
Eins og gefur að skilja hossar Viðskiptaráð aðildarfélögum sínum, sérstaklega þeim stærstu. Árlega útnefnir ráðið „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum„. Heiðursnafnbótina fá fyrirtæki „þar sem starfshættir stjórna eru vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar„. Og þó að eitthvað komi uppá sem varpar skugga á góðu stjórnarhættina, þá er Viðskiptaráð ekkert að svipta viðkomandi fyrirtæki nafnbótinni. Nýleg dæmi um þetta eru Ölgerðin (Bera), Heimar og Reiknistofa bankanna (RB). Ölgerðin er til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og nýlega gerði eftirlitið húsleit þar. Heimar voru nýlega dæmdir í Hæstarétti fyrir að brjóta lög og svína á meðeiganda að húsnæði. Reiknistofan klúðraði kerfinu hjá sér þannig að hrappar náðu að svíkja 400 milljónir króna út úr Landsbankanum. Ekkert af þessu beint til fyrirmyndar og hjá flestum öðrum hagsmunasamtökum hefðu viðkomandi ýmist verið sviptir titlinum eða vísað á brott. En kannski þykir þetta bara business as usual.





