„Ég hvet alla vini mína – liðsfélaga og mótherja – sem hafa orðið vitni af hjátrúnni/bölvuninni sem er í ætt minni varðandi græna litinn til að lesa þessa nýútkomnu skáldsögu mágs míns,“ segir Einar Baldvin Árnason lögfræðingur og KR-ingur um nýútkomna bók Birgis Tjörva Péturssonar, Skuggar af Kili:
Þar nýtir hann þessa sögu af Reynisstaðabræðrum sem efnivið og útkoman er frábærlega vel gerð bók. Það eru helst íþróttamenn sem eru skikkaðir í einhver tiltekin föt og maður hefði haldið að KR væri safe-haven varðandi græna litinn en svo var nú alls ekki. Ótrúlega oft á mínum ferli voru auglýsingarnar grænar, Arnarflug, SPRON, 10-11 o.s.frv. og alltaf þurfti að gera sérstakan búning fyrir mig með öðrum lit á auglýsingunni. Þá voru upphitunargallarnir í unglingalandsliðunum eiginlega alltaf með grænu í og ég því alltaf í öðrum galla en liðsfélagarnir. En svo var líka gott að sleppa alltaf við að fara í vesti á æfingum – en þau voru nær undantekningarlaust græn og úldin af svitalykt!
En íþróttamenn eru almennt hjátrúarfullir og með tímanum gættu liðsfélagarnir þess mjög vel að ég væri ekki í neinu grænu, t.d. þegar við ferðuðumst erlendis, enda stórhættulegt fyrir þá að ferðast með mér í flugvél ef ég væri í grænu! En allaveganna – þetta er bók sem hægt er að mæla með, þó ekki væri bara nema til að skilja betur að ég var ekki með stæla heldur er þetta dauðans alvara!“






