Í hugum flestra leit hún ekki svona út – var mun glæsilegri. Örlög hennar voru ömurleg og þessi mynd er teiknuð af AI samkvæmt raunsannri samtímalýsingu. Hver er konan?
–
Henni þótti í mörgum hlutum illa farið; bæði var hún harðlynd, hafði illt orð á sér og þótti blendin í trú svo að hún sótti nálega ekki kirkju eða hún stóð fyrir utan kirkjudyr meðan messa var flutt. Henni er svo lýst að skapnaði og háttum á alþingi 1765 að hún væri „lág og fattvaxin, mjög dimmlituð í andliti og höndum, skoleygð og brúnaþung, opinmynnt, langleit og mjög svipill og ógeðsleg, dökk á hár, smáhent og grannhent, brúkaði mikið tóbak.“
–
Svar
Halla, kona Fjalla Eyvindar.






