Menntaskólinn á Egilsstöðum hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna í ár fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu nemenda með ADHD.
Formaður ADHD samtakanna, Vilhjálmur Hjálmarsson og Stefán Magnússon, varaformaður ÖBÍ afhentu Helgu Þorleifsdóttur, félagsráðgjafa og verkefnastýru nemendaþjónustu hjá Menntaskólanum á Egilsstöðum – viðurkenningarskjal og glæsilegt málverk eftir Dagmar Róbertsdóttur, sem er betur þekkt undir listamannanafninu Dalla.






